Ráðningar hefjast hjá PCC eftir áramót

Kísilver PCC á Bakka við Húsavík. Mynd/epe
Kísilver PCC á Bakka við Húsavík. Mynd/epe

Útlit er fyrir að PCC BakkiSilicon muni ræsa verksmiðju sína á Húsavík að nýju með vorinu miðað við upplýsingar úr tilkynningu sem fyrirtækið sendi frá sér fyrir skemmstu. Til stendur að ráða fleiri starfsmenn að nýju upp úr áramótum, gangi áætlanir eftir.

Sjá einnig: Erfiður vetur fram undan í atvinnumálum

„PCC greip til tímabundinnar stöðvunar á ofnum verksmiðjunnar í ágúst sl. til að gera nauðsynlegar endurbætur á reykhreinsivirki hennar. Vegna erfiðra heimsmarkaðsaðstæðna sem sköpuðust í kjölfar COVID-19 heimsfaraldursins var ákveðið að endurræsa verksmiðjuna ekki að svo stöddu.

Í kjölfarið þurfti óhjákvæmilega að grípa til hópuppsagna, en enn starfa þó ríflega 50 manns hjá fyrirtækinu sem vinna markvisst að frekari endurbótum á búnaði og undirbúningi endurræsingar. 

Undanfarna mánuði hafa markaðir aðeins rétt úr kútnum, þó ekki svo að verð geti enn talist viðunandi. Vonir standa þó til að með vorinu munum við bæði sjá fram á lægri framleiðslukostnað sem og betri markaðsaðstæður og miðast nú vinnan á Bakka við að endurræsing verksmiðjunnar hefjist næsta vor.

Gangi þessar áætlanir eftir er ljóst að upp úr áramótum mun ráðningaferli starfsmanna hefjast. Jafnframt eru nú í gangi viðræður við birgja verksmiðjunnar varðandi endurræsinguna, það er ljóst að til að verksmiðjan geti talist samkeppnishæf á heimsmarkaði þá er gott samstarf við birgja lykilatriði,“ segir í tilkynningunni.


Athugasemdir

Nýjast