Pétur Ólafsson hefur verið ráðinn nýr hafnastjóri Hafnasamlags Norðurlands. Pétur tekur við starfinu af Herði Blöndal og hefur störf þann 1. september næstkomandi. Pétur hefur gegnt stöðu skrifstofu-og markaðsstjóra Hafnasamlags Norðurlands undanfarin 16 ár. Á þriðja tug sóttu um stöðu hafnastjóra.