Penninn kaupir elstu bókabúð á landsbyggðinni
Penninn ehf. hefur fest kaup á Bókaverslun Þórarins Stefánssonar á Húsavík sem verður ein af verslunum Pennans Eymundssonar samkvæmt heimildum vefmiðilsins dagskrain.is.
Verslunin er elsta bókaverslunin á landsbyggðinni, Þórarinn Stefánsson stofnaði verslunina á Húsavík árið 1909. Verslunin sem hefur ýmist verið kölluð Bókabúðin eða þá Ingvarsbúð stendur við Garðarsbraut og er næsta hús norðan Húsavíkurkirkju. Hún hefur verið einn af hornsteinum menningar og mannlífs á Húsavík í gegnum tíðina. Friðrik Sigurðsson sem keypti verslunina árið 2001 ásamt móður sinni Sólrúnu Hansdóttur, vildi ekki tjá sig um málið að svo stöddu en sagði að von væri á fréttatilkynningu innan skamms. /epe
Fréttin er uppfærð.
Fyrir skömmu barst fréttatilkynning frá Pennanum, hún hljóðar svo:
Penninn hefur keypt rekstur Bókaverslunar Þórarins Stefánssonar á Húsavík af Friðriki Sigurðssyni og Magneu Magnúsdóttur. Samtímis kaupir félag tengt Pennanum fasteign Bókaverslunarinnar að Garðarsbraut 9. Bókaverslun Þórarins Stefánsson var stofnuð árið 1909 og þar hafa óslitið síðan verið seldar bækur, ritföng og gjafavara og síðar einnig raftæki og minjagripir.
„Við höfum staðið vaktina í Bókaverslun Þórarins í rúm 15 ár, fyrst með foreldrum Friðriks og síðar tvö ásamt góðu starfsfólki. Okkur fannst tími til kominn að breyta til á þessum tímapunkti,“ segja Friðrik Sigurðsson og Magnea Magnúsdóttir.
„Húsvíkingar og nærsveitungar hafa reynst afar traustir viðskiptavinir alla tíð og erum við þakklát fyrir það. Það er ánægjulegt að Penninn skuli vera tilbúinn að taka við keflinu af okkur þar sem vöru- og þjónustuframboð í þeirra verslunum er að mörgu leyti líkt og í Bókaverslun Þórarins. Við óskum Pennanum allra heilla á komandi árum – enda eru nú spennandi tímar framundan á Húsavík og nágrenni.”
„Við hjá Pennanum erum afar ánægð með að taka við Bókaverslun Þórarins á Húsavík. Þar er til staðar áralöng saga viðskipta með bækur, ritföng og gjafavöru sem við munum byggja okkar rekstur á. Mikið er framundan á næstu árum á Húsavík og í Þingeyjarsýslum. Starfsfólk Pennans er stolt af því að vera með 8 starfsstöðvar utan höfuðborgarsvæðisins, þar af 7 verslanir og vöruhús á Keflavíkurflugvelli,” segir Ingimar Jónsson, forstjóri Pennans.
Penninn rekur nú 15 verslanir undir nafni Pennans/Eymundsson á landinu. Þar af 9 á höfuðborgarsvæðinu en einnig eru verslanir á Akranesi, Akureyri, Ísafirði, Keflavík, Keflavíkurflugvelli og Vestmannaeyjum. Húsavík verður því sjöunda verslunin utan höfuðborgarsvæðisins. Penninn áformar að reka verslun undir sínu nafni í húsnæðinu að Garðarsbraut 9.