PCC Bakki kaupir timbur af norðlenskum skógarbændum

Kísilver PCC á Bakka. Mynd: epe
Kísilver PCC á Bakka. Mynd: epe

Texti: Margrét Þóra Þórsdóttir

mth@vikubladid.is

 

PCC Bakki á Húsavík mun kaupa 2000 rúmmetra af timburbolum á ári næstu árin af norðlenskum skógareigendum. Samningur milli Skógræktarinnar og PCC Bakka þar um hefur verið undirritaður.

 Þreifingar hafa staðið yfir í nokkur misseri um möguleg kaup PCC á timbri úr skógum á norðanverðu landinu. Samningar tókust og voru þeir undirritaðir í vikunni.

Pétur Halldórsson kynningarstjóri Skógræktarinnar segir að fyrirtækið hafi í upphafi talið að einungis yrði hægt að nota innfluttan við af lauftrjám í framleiðsluna á Bakka en það fékk sýnishorn af íslensku timbri til prófana. Þau sýndu að hægt er að nota timbur af öllum helstu trjátegundum í íslenskri skógrækt.

Í kísilveri eins og verksmiðju PCC á Bakka er mjög mikilvægt að forðast öll aðskotaefni, svo sem þungmálma og steinefni sem kunna að leynast í timbrinu. Á Íslandi er loftmengun mjög lítil og því er timbrið nægilega hreint til vinnslunnar á Bakka.

Skógurinn verður verðmætari

Fyrir norðlenska skóga þýðir þetta að sögn Péturs  að nú verður auðveldara að sinna grisjun þeirra. „Jafnvel þótt ekki sé víst að timbursalan til PCC standi að fullu undir kostnaði við grisjun, hvað þá að hagnaður sé af grisjuninni, fæst með þessu fjármagn til að sinna nauðsynlegri grisjun,“ segir Pétur

Slík grisjun stuðli að því að í skóginum standi áfram bestu trén sem geta þá vaxið betur og myndað verðmætara timbur í framtíðinni. „Það þýðir að skógarnir verða verðmætari og eigendur þeirra fá meiri arð út úr þeim í fyllingu tímans,“ segir hann og bendir á að með því að nota innlent timbur í stað innflutts eða kol í framleiðslu sinni dragi PCC úr umhverfisáhrifum starfsemi sinnar.

„Minni flutningar á timbri leiða til minni losunar á hverja timbureiningu og ef íslenskt timbur leysir af hólmi innflutt kol eru áhrifin enn meiri,“ segir Pétur.


Athugasemdir

Nýjast