Páskahret, segir Veðurklúbbur Dalbæjar

Frá Dalvík/mynd dalvik.is
Frá Dalvík/mynd dalvik.is

Í dag var haldinn fundur í Veðurklúbbi Dalbæjar, mættir voru ellefu félagar.

Farið var yfir veðurfar í mars og voru klúbbfélagar  sáttir við hvernig spáin gekk eftir.

„Aprílmánuður kemur til mað að verða þokkalegur framan af. Þó mun koma hret seinnipart mánaðar, sem flokkað er sem páskahret. Það að farfuglar eru farnir að gera vart við sig bendir til þess að tíð verði í mildara lagi. Lóan er til dæmis komin og heyrst hefur í hrossagauk. Nýtt tungl kviknar þann 29. apríl  í A - kl. 06:14 sem er sumartungl. Það að tunglið kviknar á þriðjudegi setur lítillega óvissu í spána. Látum við tímann leiða í ljós merkingu þess að tunglið kviknar á þessum degi,“ segir í spá Veðurklúbbs Dalbæjar fyrir apríl.

Nýjast