Óvenjuleg gæludýr í Áshlíðinni á Akureyri
Í Áshlíðinni fá yrðlingarnir, sem eru eins og hálfs mánaðar gamlir, að leika lausum hala, enda nokkuð gæfir. Þeir una hag sínum vel á lóðinni og hafa athvarf undir veröndinni og í bíl á bílastæðinu. Þeir eru reyndar farnir að fara yfir til nágranna Björns, sem reka upp stór augu yfir heimsóknum þeirra. Björn segir að yrðlingarnir séu farnir að grafa sig undir gasgrillið sitt og hann á allt eins von á því að þeir fari að taka upp kartöflur í görðum nágranna sinna.
Sváfu uppí rúmi
Til að byrja með voru yrðlingar hafðir í hundabúri innan dyra og einnig fengu þeir að sofa uppi í rúmi hjá Stefáni, 12 ára syni Björns. Hann segir að yrðlingarnir séu duglegir að étja, þeir rífi m.a. upp fífla og éti rótina og þá eru þeir sérstaklega hrifnir af agúrku. Á heimilinu er einnig tíkin Dimma og segir Björn að hún hugsi vel um yrðlingina og að samkomulagið sé gott. Dimma haldi að hún sé mamma þeirra og að þeir líti á tíkina sem móður sína.