Óskað eftir leyfi fyrir grenndar- gáma til sorpflokkunar

Á fundi skipulagsnefndar í vikunni var tekið fyrir erindi frá Bergi Þorra Benjamínssyni f.h. framkvæmdadeildar þar sem hann óskar eftir leyfi til að setja niður grenndargáma til sorpflokkunar á 12 stöðum á Akureyri. Um er að ræða svæði við verslanalóðir og hins vegar við skóla og þjónuustusvæði. Skipulagsnefnd frestaði afgreiðslu málsins.  

Sótt var um eftirtaldin svæði:
Verslunarlóðir:
1) Hrísalundur 5, Samkaup.
2) v/Mýrarveg, Kaupangur.
3) Byggðavegur 98, Strax.
4) Gleráreyrar 1, Glerártorg.
5) Furuvellir 17, Hagkaup.
6) Sunnuhlíð 12, Sunnuhlíð.
7) Langholt, Bónus.

Skólar og þjónustusvæði samkvæmt skipulagi: 8
8) Síðuskóli.
9) Giljaskóli.
10) Kjarnagata sunnan við Bónus.
11) Hólmatún hjá leikskóla.
12) Hafnarstræti við leikvöll.

Nýjast