Framkvæmdastjórn bankans mun sitja fyrir svörum í opnum umræðum. Á morgun, fimmtudaginn 3. febrúar kl. 20.00 verður opinn fundur í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri. Laugardaginn 5. febrúar verður fundur í Edinborgarsalnum á Ísafirði kl. 13.00, á Hótel Héraði á Egilsstöðum mánudaginn 7. febrúar kl. 20.00 og á Hótel Selfossi þriðjudaginn 8. febrúar kl. 20.00. Í framhaldinu verða svo haldnir fundir í Hafnarfirði, á Akranesi, í Reykjanesbæ, Reykjavík og Höfn. Fólk er hvatt til þess að koma á fundina og eiga opinská samskipti við stjórnendur Landsbankans.