Opnar vinnustofur á degi myndlistar.

Í húsnæði Grasrótar að Hjalteyrargötu 20á Akureyri  hefur margt fólk vinnuaðstöðu. Þar á meðal nokkrir myndlistarmenn.Samband íslenskra myndlistarmanna (SÍM) stendur árlega fyrir Degi myndlistar og nú ber daginn upp þann 3. nóvember. Opnar vinnustofur verða um allt land og þar á meðal í Grasrót milli kl. 14-17 þennan dag.
„Opnar vinnustofur listamanna árlega út um allt land gefa almenningi kost á að skoða vinnuaðstöðu og verk, spjalla beint við listamenn og fræðast um starfið. Þannig gefum við listamönnum einnig kost á því að kynna starf sitt fyrir almenningi, veita þeim einstaka upplifun og víkka sýn á myndlist og vinnunni sem fer fram bak við tjöldin,“ segir í frétt frá SÍM

Nýjast