02. nóvember, 2012 - 19:25
Í húsnæði Grasrótar að Hjalteyrargötu 20á Akureyri hefur margt fólk vinnuaðstöðu. Þar á meðal nokkrir myndlistarmenn.Samband íslenskra myndlistarmanna (SÍM) stendur árlega fyrir Degi myndlistar og nú ber daginn upp þann 3. nóvember. Opnar vinnustofur verða um allt land og þar á meðal í Grasrót milli kl. 14-17 þennan dag.
Opnar vinnustofur listamanna árlega út um allt land gefa almenningi kost á að skoða vinnuaðstöðu og verk, spjalla beint við listamenn og fræðast um starfið. Þannig gefum við listamönnum einnig kost á því að kynna starf sitt fyrir almenningi, veita þeim einstaka upplifun og víkka sýn á myndlist og vinnunni sem fer fram bak við tjöldin, segir í frétt frá SÍM