Opinberu háskólarnir gera samning um gagnkvæman aðgang nemenda

Háskólasvæðið á Sólborg. Mynd: Hörður Geirsson.
Háskólasvæðið á Sólborg. Mynd: Hörður Geirsson.

Opinberu háskólarnir fjórir, Háskóli Íslands, Háskólinn á Akureyri, Landbúnaðarháskóli Íslands og Hólaskóli, Háskólinn á Hólum, hafa gert með sér samning um gagnkvæman aðgang nemenda að námskeiðum við skólana. Rektorar skólanna skrifuðu undir samninga þessa efnis að viðstöddum mennta- og menningarmálaráðherra, Katrínu Jakobsdóttur, í Þjóðmenningarhúsinu við Hverfisgötu í morgun.

Samningurinn tekur gildi í janúar 2012 og munu nemendur geta skráð sig í námskeið við annan opinberan háskóla án þess að greiða nein viðbótargjöld og án þess að móttökuskólinn setji almenn takmörk á fjölda eininga, sem gestanemandi tekur með þessum hætti. Nemendur þurfa þó að leita til síns heimaskóla áður en skráning í námskeið fer fram, til að tryggja að þau fáist metin til viðkomandi prófgráðu. Skólarnir munu hvetja nemendur til að nýta sér þennan valkost og námsnefndir munu skilgreina námskeið sem þær mæla með við aðra skóla. Skólarnir munu í fyllingu tímans geta nýtt þennan samning til að hagræða í námsframboði sínu, með því að sameina námskeið þvert á skóla og samkenna þau með hjálp fjarkennslutækni. Samningur þessi mun leiða af sér hagræðingu, bætta nýtingu á mannauði og kennsluaðstöðu skólanna og síðast en ekki síst aukinn fjölbreytileika í valkostum fyrir nemendur.

Samstarf opinberu háskólanna byggir á stefnu þar að lútandi sem sett var af mennta- og menningarmálaráðherra í ágúst 2010 og gildir til 1. september 2012. Sérstök verkefnisstjórn var skipuð til að stýra verkefninu en í henni sitja rektorar skólanna ásamt fleirum, segir í fréttatilkynningu.

Nýjast