Ólafur Gylfason golfkennari GA fór holu í höggi

Ólafur Gylfason golfkennari hjá GA fór holu í höggi í gær. Hann setti draumahöggið í á 4. holu til þess notaði hann 5. járn, sló háan bolta, holan var hægra megin á flötinni þannig að ekki sést frá teig, svo að hann sá ekki þegar hún fór í.  

Þetta er í annað sinn sem Ólafur nær draumahögginu, en hann fór holu í höggi á 6. holu að Jaðri 2008 og þá sló hann með sama járni og nú. Þetta er í 9. sinn sem kylfingur fer holu í höggi að Jaðri, nú á nokkrum vikum.

Nýjast