Ókeypis sandur í hálkunni

Íbúar Akureyrar geta nú sótt sér sand án endurgjalds til að bera á svellbunkana sem myndast hafa í hálkutíðinni undanfarnar vikur.

Eins og fram kom í Vikudegi í síðustu viku hefur sandur selst vel hjá Byko, en 25 kílóa poki kostar þar 690 krónur.

Gagnrýnt hefur verið að Akureyrarbær hafi ekki líkt og sum önnur sveitarfélög hafi boðið íbúunum að sækja sér sand í haug, til að hálkuverja.

Úr þessu hefur nú verið bætt. Sandhaugur er við gámasvæðið í miðbænum og svo annar við Réttarhvamm.

karleskil@vikudagur.is

Nýjast