Óðinn Ásgeirsson leikmaður 1. deildar liðs Þórs í körfubolta íhugar að leggja skóna á hilluna að nýju. Óðinn var lykilmaður í liði Þórs í vetur sem var hársbreidd frá því að tryggja sér sæti í úrvalsdeildinni og var valinn besti maður liðsins í vetur.
„Það er ekkert rosalega líklegt að ég verði áfram en ég er ekki búinn að taka endanlega ákvörðun, ” segir hann. „Ég bý frekar langt frá núna og það er að mörgu að hyggja í þessu. Ég ætla hins vegar að sjá til bara eftir sumarið hvernig staðan verður,” segir Óðinn.