Óbreytt fyrirkomulag á rjúpna- veiði sem hefst eftir viku

Rjúpnaveiðitímabilið hefst eftir viku, eða föstudaginn 29. október, og stendur til sunnudagsins 5. desember. Á tímabilinu verður heimilt að stunda veiðar á föstudögum, laugardögum og sunnudögum og verða veiðidagar því átján talsins. Fyrirkomulag rjúpnaveiða í haust verður óbreytt frá fyrra ári, samkvæmt ákvörðun umhverfisráðherra.  

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra greip til þeirrar nýbreytni í fyrra að setja reglugerð um rjúpnaveiði til þriggja ára, nema að óvænt þróun yrði í rjúpnastofninum á tímabilinu. Að mati Náttúrufræðistofnunar Íslands var veitt heldur meira af rjúpu í fyrra en áætlanir gerðu ráð fyrir. Til að stuðla að því að veiði fari ekki aftur fram úr veiðiráðgjöf hefur umhverfisráðherra lagt áherslu á það við skotveiðimenn að þeir stundi hófsamar veiðar, en það er ein helsta forsenda þess að rjúpnaveiðar geti haldið áfram með sama hætti á næsta ári. Auk þess verður sölubann áfram í gildi á rjúpu og rjúpnaafurðum, segir á vef Umhverfisstofnunar.

Rjúpnaskyttur þurfa að komast í rjúpnalönd til að stunda sínar veiðar og þurfa jafnframt að hafa misjafnlega mikið fyrir því. Á síðasta fundi sveitarstjórnar Grýtubakkahrepps voru kynnt tilboð sem bárust í leigu á rjúpnalandi sveitarfélagsins. Sveitarstjórn samþykkti að taka tilboði Aðalsteins Guðmundssonar, sem bauð 254.000 krónur í leigu á landinu. Fjörðungar ehf. buðu 250.000 krónur og Guðni Rúnar Tómasson bauð 101.000 krónur.

Nýjast