Mikill mismunur er á framlagi ríkisins til menningarstofnanna í Reykjavík og á Akureyri. Á undanförnum árum hafa framlög til stofnana ríkisins í Reykjavík s.s. Hörpu, Listasafns Íslands, Þjóðleikhússins og Sinfóníuhljómsveitar Íslands hækkað um hundruði milljóna króna á sama tíma og framlög ríkisins til sambærilegra stofnana á Akureyri hafa staðið í stað. Samkvæmt fjárlögum fyrir árið 2016 er ekki að sjá neina breytingu á þessu.
Málið var rætt á fundi bæjarstjórnar Akureyrar á þriðjudaginn sl. en þar kom fram megn óánægja meðal bæjarfulltrúa með framlag ríkisins til menningarstofnana í bænum. ítarlega er fjallað um þetta mál í prentútgáfu Vikudags sem kemur út í dag.
-þev