Nýtt krabbameinslyf kynnt
Samkvæmt tilkynningu á vef Lyfjafyrirtækisins Alvogen var fyrirtækið fyrst á markað með nýtt samheitalyf á Íslandi og á ýmsum mörkuðum í Mið- og Austur Evrópu.
Reseligo heitir umrætt krabbameinslyf en það er samheitalyf Zoladex sem seldist fyrir um 200 milljónir evra í Evrópu á síðasta ári en á Íslandi nam sala frumlyfsins um 66 milljónum króna. „Við markaðssetningu Reseligo, sem er heiti samheitalyfsins, býðst sjúklingum ódýrari valkostur,“ segir í tilkynningunni
Reseligo er notað til meðhöndlunar á krabbameini í blöðruhálskirtli hjá körlum en hjá konum er það meðal annars notað við brjóstakrabbameini. /epe