Geir sagði að þótt útlit sé fyrir hækkandi raforkuverð „eigum við ekki að þurfa að láta verð á heitu vatni til húshitunar fylgja þessari þróun," heldur þvert á móti. Líkur séu á að sé orkuverð of lágt geti það leitt til sóunar. Heitavatnsuppsprettur Norðurorku sem nú eru virkjaðar séu ekki óþrjótandi. Aukin sala á heitu vatni kemur fyrr eða síðar til með að kalla á dýrar aðgerðir vegna vatnsöflunar. Þó ekki væri nema þess vegna, ber að stuðla að því að jarðhitaorkan sé nýtt skynsamlega og að henni sé ekki sóað."
Benti Geir á að hitunarkostnaður húsa á Akureyri sem og á öðrum veitusvæðum Norðurorku væri aðeins brot af því sem gerist á Norðurlöndunum og raunar víðast hvar í heiminum og munaði það verulegum fjárhæðum. Þannig væri tæplega sex sinnum dýrara að kynda hús í Kaupmannahöfn en á Akureyri miðað við sömu orkunotkun. „Ef flytja þyrfti inn eldsneyti til að hita hús á hitaveitusvæði Norðurorku hf. yrði húshitun á svæðinu 3,6 til 4 milljörðum króna dýrari en nú er."