Nýr menningarsamningur milli ríkisins og Akureyrarbæjar

Illugi Gunnarsson og Eiríkur Björn Björgvinsson við undirritun samningsins. Mynd/Þórgnýr Dýrfjörð
Illugi Gunnarsson og Eiríkur Björn Björgvinsson við undirritun samningsins. Mynd/Þórgnýr Dýrfjörð

Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra og Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri á Akureyri undirrituðu í síðustu viku nýjan menningarsamning milli ráðuneytisins og Akureyrarbæjar. Um er að ræða endurnýjun eldri samnings en menningarsamstarfið teygir sig allt aftur til ársins 1997. Samningurinn nær til yfirstandandi árs og ársins 2017. Þetta kemur fram á vef Akureyrarbæjar. Fjárveitingar ríkisins til samningsins hækka úr 138 milljónum kr. árið 2015 í 168 milljónir árið 2016. Á seinna ári hans hækkar framlagið sem nemur áætlaðri hækkun verðlags og verður 172,2 milljónir kr. árið 2017.

Meginmarkmið með samningnum er að efla hlutverk Akureyrar sem miðju utan höfuðborgarsvæðisins í lista- og menningarlífi á Íslandi og stuðla að auknu atvinnustarfi í listum á Akureyri. Þetta er gert með stuðningi við meginstofnanir á sviði leiklistar, myndlistar og tónlistar. Samningurinn nær til reksturs Leikfélags Akureyrar, Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands og Menningarhússins Hofs en Menningarfélag Akureyrar hefur rekstur þeirra með höndum um þessar mundir. Einnig nær samningurinn til reksturs Listasafnsins á Akureyri.

 

Nýjast