Þessi verkefni eru margþætt í sveitarfélaginu. Í því eru m.a. fjögur fyrirtæki sem ætlað er að gera sérstaklega út á menningartengda starfsemi, þ.e. Amtmannssetrið á Möðruvöllum ses., Gásakaupstaður ses., Hraun í Öxnadal ehf. og Verksmiðjan, sem er menningarmiðstöð á Hjalteyri. Auk þess eru nokkur mjög virk félög í sveitarfélaginu, sem líka koma inn í þessa mynd. Mikils er vænst af framlagi Skúla til að stuðla að öflugu menningarlífi og atvinnulífi í sveitarfélaginu, segir á vef Hörgársveitar.