Báturinn hefur fengið nafnið Amma Sigga, eftir ömmu Stefáns Guðmundssonar, eiganda og framkvæmdastjóra, en hún bjó alla sína tíð við Skjálfandaflóa; fædd 1913 og sjö barna móðir. Saga hennar hefur löngum verið sögð í ferðum um Skjálfandaflóa sem og í Stikkluþáttum Ómars Ragnarssonar. Þegar hún var átta ára gömul og átti heima í torfbæ á Vargsnesi í Náttfaravíkum þá setti faðir hennar fram árabát og réri til Húsavíkur, sótti handa henni orgel og réri til baka yfir flóann og tók land undir Vargsnesi. Spenningur dótturinnar var þvílíkur að þegar báturinn lenti í fjörunni þá var orgelið tekið úr umbúðunum í fjöruborðinu og dóttirin, Sigríður Sigurbjörnsdóttir (Amma Sigga), lék fyrstu tónana á orgelið - áður en faðir hennar og annar til - settu það á bakið og báru upp í torfbæinn þeirra.
Með tilkomu þessa hraðskreiða harðbotna slöngubáts opnast fjölmörg ný og spennandi tækifæri í sjóferðum - bæði fyrir ferðafólk sem og fyrir heimamenn. Báturinn mun verða í áætlunarferðum í nýrri lundaskoðunarferð til Lundeyjar og stórhvalaskoðun. Einnig eru möguleikarnir endalausir fyrir klæðskerasaumaðar ferðir þar sem siglingatímar styttast verulega. Má t.d. nefna starfsmanna- og fjölskylduferðir út í Flatey, Grímsey, Siglufjörð eða Hrísey og þjónustu við gönguhópa, kvikmyndatökufólk, ljósmyndara, kafara og annað ævintýrafólk sem leitar að nýjum áskorunum á sjó. Frekari upplýsingar á heimasíðu Gentle Giants www.gentlegiants.is.
Eftir gagngerar breytingar á flota fyrirtækisins er Amma Sigga vel búin til farþegaflutninga, samkvæmt reglum Siglingastofnunnar. Fyrir á Gentle Giants tvo eikarbáta, einn plastbát og svokallaðan Zodiac bát, sem notaðir eru í hvalaskoðun, sjóstöng og öðrum útsýnisferðum frá Húsavík, segir í fréttatilkynningu.