Verkefnastjórar Impru veita einstaklingunum ráðgjöf við framsetningu og ritun viðskiptaáætlana og kennarar við viðskipta- og raunvísindadeild HA leggja einnig sitt af mörkum eftir því sem þörf krefur.
Verkefni Norðursprota sem hlutu styrki eru:
Sjálfbærar veiðar að hausti. Ferðaþjónustan Álheimar. Verkefnið snýst um að fá erlenda veiðimenn til Austurlands að hausti til að veiða gæsir, endur, rjúpur og/eða silung.
Birkisafi. Holt og heiðar ehf. Stefnt er að því að koma ferskum birkisafa á markað með 6 mánaða geymsluþol eða meira. Unnið verður að því að halda eiginleikum safans sem best, án þess að nota viðbætt auka- og rotvarnarefni.
Highland sailing. Hildur Einarsdóttir. Skipulagðar siglingar með leiðsögn fyrir ferðamenn á Hálslóni við Kárahnjúka.
Grænn efnaiðnaður. Ásgeir Ívarsson. Verkefnið felur í sér gerð hagkvæmnimats og viðskiptaáætlunar fyrir framleiðslu asetína, en þau má nýta sem íblöndunarefni í eldsneyti og leysiefni og til framleiðslu matvæla, snyrtivara og lyfja.
Kjötkrókur. Helga Ragnheiður Jósepsdóttir. Kjötkrókur er standur fyrir hangikjötslæri. Ætlað bæði heimilum og veitingahúsum.
Plastbátar. Rán ehf. Verkefnið gengur út á að gera viðskiptaáætlun fyrir fyrirtæki sem sérhæfir sig í framleiðslu á plastbátum úr PVC rörum.
Snjóþota. Sigurbjörn Höskuldsson. Hönnun og smíði móts til framleiðslu á snjóþotu í samstarfi við Promens Sæplast á Dalvík.Þessi snjóþota er stærri og endingarbetri en þær snjóþotur sem í boði eru.
Skíðarúta. Jón Þór Benediktsson. Verkefnið gengur út á að setja á fót sérútbúna
skíðarútu sem gengur á milli gististaða á Akureyri og upp í Hlíðarfjall og sinnir einnig ferðum í samvinnu við
Skíðafélag Akureyrar.
Nuddsteinar. Anna Sóley Herbertsdóttir. Hönnun og þróun steina fyrir steinanuddmeðferðir. Efni er keypt frá Álfasteini á
Borgarfirði eystra en fullunnið á Akureyri.
Sjúkraflugfélag Íslands - ICEMED. Björgn Gunnarsson. Verkefnið fellst í því að þróa viðskiptahugmynd og
undirbúa stofnun sjálfseignarfélags í sjúkraflugsþjónustu á norðuslóðum. Þar er átt við Ísland,
Grænland og e.t.v. Færeyjar.