Norðurorka hættir með kattarslaginn á Ráðhústorgi

Norðurorka hf. hefur tekið ákvörðun um að hætta með kattarslaginn á Ráðhústorgi á öskudaginn en undanfarin ár hefur þeim krökkum sem mæta á Ráðhústorg fækkað mjög og virðist sem þessi viðburður eigi undir högg að sækja í samkeppninni, segir m.a. í  fréttatilkynningu frá Norðurorku. Það mun hafa verið í kringum 1970 að starfsmenn Rafveitu Akureyrar endurvöktu þann gamla sið að slá köttinn úr tunnunni.  

Í upphafi var þetta bundið við að starfsmenn og gestir þeirra komu á starfsstöð Rafveitunar til þess að slá köttinn úr tunnunni.  Nokkrum árum síðar var viðburðurinn fluttur inn á Ráðhústorg, en einnig var farið með tunnu upp á Sólborg þar sem vistmenn og starfsmenn þar slógu köttinn úr tunnunni. Tunnan var laminn með hakasköftum þar til hún brotnaði og sá sem braut hana fékk hengda á sig viðurkenningu tunnukóngsins. Kattakóngurinn varð sá sem náði með bitlitlu sverði að höggva sundur spottan sem hélt tunnunni en í honum hékk hrafn.  Þessu var síðar breytt þannig að sá sem hreinsaði tunnustafina af botninum varð tunnukóngur, en sá sem braut botnfjölina af spottanum varð kattakóngur.  Auk þess að tunnukóngur og kattakóngur fengju verðlaunapening hafa jafnan einnig verið veitt verðlaun sem fyrirtæki í miðbænum hafa lagt til. Nú er svo komið að undanfarin ár hefur þeim krökkum sem mætta á Ráðhústorgið til þess að slá köttinn úr tunnunni fækkað mjög og virðist sem þessi viðburður eigi undir högg að sækja í samkeppninni.  Af þessum sökum hefur Norðurorka hf. tekið ákvörðun um að hætta með kattarslaginn á Ráðhústorgi, segir í fréttatilkynningu Norðurorku.

Nýjast