Nám í Menntastoðum fyrir fólk á Norðurlandi og Vestfjörðum

Nú gefst fólki á Norðurlandi og Vestfjörðum tækifæri til að stunda nám í Menntastoðum með dreifnámsfyrirkomulagi eða fjarfundabúnaði. Dreifnám felst í því að kennt er einu sinni í viku á þriðjudögum frá kl. 16:00-21:00 og annan hvern laugardag frá kl. 09:00-17:00.  

Kennslan fer fram á Akureyri en þeir sem búa annars staðar geta sótt námið í gegnum fjarfundabúnað í námsverum. Námið er skipulagt í samvinnu við símenntunarmiðstöðvar SÍMEY, Farskólann á Norðurlandi vestra og Fræðslumiðstöð Vestfjarða. Menntastoðir hefjast 5. nóvember 2010 og lýkur í maí/júní 2011. Námið hefst á tveimur vinnuhelgum og kennt er frá hádegi á föstudegi fram á sunnudag. Mikilvægt er að allir nemendur mæti þá til Akureyrar. Menntastoðir eru nám á framhaldsskólastigi og gefur um 50 einingar inn í Háskólabrú Keilis. Aldurstakmark 20 ára og eldri.

Nýjast