„Það er allt annar bragur á Valsliðinu núna en var í haust. Það er kominn mun meiri stöðuleiki í liðið núna eftir að Hlynur Morthens kom aftur inn í markið hjá þeim.
Valur er á uppleið og liðið er mun betra en staða liðsins í deildinni segir til um. Það er alveg á hreinu að við þurfum að vera á tánum til þess að klára þennan leik,” segir Atli.
Aðrir leikir kvöldsins eru HK-Afturelding, Fram-FH og Haukar-Selfoss.
Nánar er rætt við Atla um seinni hluta Íslandsmótsins í Vikudegi í dag.