Mývatnsmararþon verður þreytt í blíðunni um helgina
Hið árlega Mývatnsmaraþon verður þreytt n.k. laugardag 4. júni. Veðurspáin lítur vel út og því er um að gera að skella sér í hlaupaskónna og taka þátt. Keppt er í maraþoni, hálfmaraþoni, 10 og 3ja km hlaupi.
Allir sem ljúka keppni fá verðlaunapening, stuttermabol merktan hlaupinu, grillveislu og ókeypis í jarðböðin við Mývatn. Einnig verða veitt sérstök útdráttarverðlaun.
Upplýsingar um verð, skráningu og tímasetningar er að finna á viðburðadagatali www.visitmyvatn.is og hægt verður að skrá sig til leiks fram á keppnisdag. JS