Myndlist og ljóðaupplestur í Mjólkurbúðinni

 Í dag opna  Margrét Lóa Jónsdóttir og Brynhildur Kristinsdóttir  sýninguna Þokuþrá í Mjólkurbúðinni á Akureyri.  Til umfjöllunar eru samkennd og siðblinda. Á opnuninni frumflytur Margrét Lóa ljóð en öll verk hennar eru byggð á ljóðum úr væntanlegri ljóðabók hennar. Brynhildur sýnir olíumálverk, lágmyndir og skúlptúr. Mjólkurbúðin er staðsett í Listagilinu á Akureyri. Sýningin opnar klukkan 15:00

Nýjast