Í dag opna Margrét Lóa Jónsdóttir og Brynhildur Kristinsdóttir sýninguna Þokuþrá í Mjólkurbúðinni á Akureyri. Til umfjöllunar eru samkennd og siðblinda. Á opnuninni frumflytur Margrét Lóa ljóð en öll verk hennar eru byggð á ljóðum úr væntanlegri ljóðabók hennar. Brynhildur sýnir olíumálverk, lágmyndir og skúlptúr. Mjólkurbúðin er staðsett í Listagilinu á Akureyri. Sýningin opnar klukkan 15:00