"Við erum öll meðvituð um stöðu mála í dag og skiljum vel að einhversstaðar þurfa að bregða hnífnum á. En við verðum að passa okkur á því að drepa ekki niður frumkvæði og viljan til framkvæmda. Akureyrarbær hefur unnið sér nafnið menningarbær og við viljum öll tryggja að svo verði áfram. En þetta eru því miður skýr skilaboð til þeirra listamanna sem búa á Akureyri," segir í bréfi Myndlistarfélagsins.
"Á erfiðum tímum sem þessum er menningin mikilvægur þáttur í uppbyggingu þess samfélags sem við viljum skapa. Hún er
tæki sem við getum notað til breytinga og vaxtar. Fyrir 20 árum síðan fór hópur áhugafólks um menningu af stað með framsæknar
hugmyndir og nýja sókn. Listagilið varð til. Þar var áður mikill iðnrekstur á vegum Kaupfélags Eyfirðinga sem hafði flutt starfsemi
sína. Sennilega er þetta eitt mesta framfaraskref í menningarmálum Akureyrarbæjar. Hugmyndir spruttu úr grasrótinni og urðu að veruleika með
dyggri aðstoð bæjaryfirvalda. Allir vildu verkefninu vel og lögðu fjölmargir fram krafta sína og byggðu upp Gilið. Síðan hefur margt runnið
til sjávar og er nú öflug listastarfsemi í Listagilinu.
En til þess að listin geti þjónað hlutverki sínu í okkar samfélagi sem uppspretta nýrra og frumlegra hugmynda, þarf hún frelsi til
að þróast. List á ekki bara að veita ánægju, og vekja aðdáun, það er einnig hlutverk hennar að vera ögrandi, spyrja spurninga,
koma á óvart og benda á það sem við hefðum annars ekki komið auga á, eða viljum jafnvel ekki koma auga á. Grundvöllur
nýsköpunar og öflugs listalífs er að sem flestir taki þátt í menningarlífinu. Listin á stóran þátt í
því að gera bæjarlífið spennandi, áhugavert og skemmtilegt.
Mikilvægt er að styrkveitingar bæjarins til listalífsins taki mið af því að mörkin milli listforma og ólíkra menningarheima eru í
sífelldri endurskoðun. Við teljum það lykilatriði og hlutverk bæjaryfirvalda í menningarlífi að vera í góðum tengslum við
grasrótina og þá sem stunda hefðbundnari listsköpun. Auk þess að styðja verkefni sem hafa sannað gildi sitt og fundið sinn farveg, þarf
bærinn að hlúa að grasrótar- og tilraunastarfsemi, sem oft er vísirinn að því sem koma skal. Til þess að listalíf bæjarins
geti blómstrað þarf einnig að vera fyrir hendi hentug vinnu- og sýningaraðstaða á viðráðanlegum kjörum fyrir yngri sem eldri listamenn.
Þar þjónar Gilið mikilsverðu hlutverki sem staður viðburða og sköpunar.
Stjórn Myndlistarfélagsins lýsir yfir áhyggjum sínum vegna skerðingar Akureyrarbæjar á starfslaunum listamanna og öðrum styrkjum til
menningarmála og listaverkakaupa. Við teljum brýnt á tímum sem þessum að efla frumkvæði og sköpunarkraft með öllum tiltækum
ráðum. Þá er mjög athyglisvert að skoða sáttmála meirihlutaflokkana í ljósi niðurskurðarins.
Leiðarljós meirihlutaflokkanna í menningarmálum er menningarstefna sem gildir til ársins 2008. Markmiðið er að Akureyri verði fyrirmynd annarra
sveitarfélaga í menningarmálum með stuðningi ríkisvaldsins, atvinnumennska listamanna verði efld og fjölbreytni í menningar- og listastarfsemi
aukin. Vilji er til að tryggja jafnan aðgang íbúa að menningarstarfsemi og sérstök áhersla lögð á þátttöku barna.
Sérstök verkefni á kjörtímabilinu eru:
Samt og þrátt fyrir þetta hefur komið til skerðingar á starfslaunum listamanna og öðrum styrkjum til myndlistar og listaverkakaupa," segir ennfremur
í bréfi Myndlistarfélagsins.