„Minn eða þinn sjóhattur?“

Bogomil Font skemmtir með Karlakór Akureyrar-Geysir.
Bogomil Font skemmtir með Karlakór Akureyrar-Geysir.

Karlakór Akureyrar-Geysir, Bógómíl Font og hljómsveit, sameinast á tónleikum í Hamraborg í Menningarhúsinu Hofi, föstudaginn 5. júní, kl. 20:00. Sérstakur gestur er Óskar Pétursson. Tónleikarnir eru tileinkaðir sjómönnum og sjómennsku og því haldnir helgina sem ber upp á sjómannadaginn. Tónleikarnir eru ólíkir öllu því sem KAG hefur hingað til gert og kórfélagar feta þarna alveg nýjar og spennandi slóðir.

Söngskráin er afar óvenjuleg fyrir karlakór; létt, þung, glettin, ljúf, rokkuð, en umfram allt ákaflega skemmtileg er segir tikynningu frá kórnum.
 
"KAG flytur karlakórslög í nýjum búningi og popp og rokk í karlakórsbúningi. Syngur á íslensku, ensku, sænsku. Lög með Bógómíl Font, Bubba Morthens, Rod Stewart, Hauki Mortens, Ólafi Þórarinssyni. Svo koma við sögu Davíð Stefánsson, Páll Ísólfsson, Áskell Jónsson, Sigfús Halldórsson og fleiri. Saman er þetta stórskemmtileg blanda, sjómannaprógramm og KAG með sjóhatt!" segir ennfremur í tilkynningu. 

Hjörleifur Örn Jónsson er stjórnandi KAG en hann hefur útsett flest laganna fyrir kórinn á þessum tónleikum. 
 

Nýjast