Millilandaflug enn á áætlun
Ég ítreka það sem ég hef áður sagt að við erum að vinna á vegum Flugklasans Air66N að því að koma á millilandaflugi um Akureyrarflugvöll og munum halda því áfram af fullum krafti, segir Arnheiður Jóhannsdóttir framkvæmdastjóri Markaðstofu Norðurlands. Í frétt Vikudags á dögunum var sagt frá því að millilandaflug væri í pípunum frá Akureyri.
Lággjaldaflugfélög frá Þýskalandi, Bretlandi og Skandinavíu væru að kanna möguleika á millilandaflugi og svo gæti farið að flugferðir myndu hefjast strax næsta sumar.
Í framhaldi birtist frétt á vefnum túristi.is þar sem forsvarsmenn nokkurra evrópskra flugfélaga sögðust hins vegar ekki vera að kanna flug norður.
Nánar er fjallað um málið og rætt við Arnheiði í prentútgáfu Vikudags