Mikilvægt að huga að efnahagslegum fjölbreytileika fyrir landsbyggðina

Menningarhúsið Hof á Akureyri
Menningarhúsið Hof á Akureyri

Gunnar Bragi Sveinsson ráðherra byggðamála opnaði í gær ráðstefnuna „Nordic Ruralities: Crisis and Resilence“.

Um þrjú hundruð sérfræðingar á sviði byggðamála frá 27 löndum kynna rannsóknir sínar á ráðstefnunni sem haldin er í Háskólanum á Akureyri og stendur fram á þriðjudag. Gunnar Bragi með ávarp

Gunnar Bragi talaði m.a. um mótun nýrrar byggðaáætlunar sem er verið að kynna allt land. Hann fór einnig yfir mikilvægi efnahagslegs fjölbreytileika fyrir landsbyggðina og hvernig ríkisstjórnin er að mæta því. Styrkir til ljósleiðaravæðingu fyrir landsbyggðina er liður í því.

Ímynd norðurslóða í kvikmyndum, áfengis- og vímuefnaneyslu ungs fólks, svæðisbundin áhrif háskólastarfs, skipulag heilbrigðisþjónustu, ferðaþjónustu og húsnæðismarkað, áhrif fiskveiðistjórnunar á byggðaþróun og starfsemi frumkvöðla af erlendum uppruna í dreifðum byggðum eru meðal þess sem rætt verður á ráðstefnunni. /epe

Nýjast