Ragnar Sverrisson skrifar
Ástæða er til að þakka Páli Björnssyni fyrir málefnalega grein í síðasta Vikudegi um miðbæinn og áralanga baráttu fjölda manns fyrir umbótum á þeim vettvangi. Hann minnir á að eitt markmiða endurskoðaðs skipulags, sem var afurð mikillar og skipulegrar vinnu íbúaþings, var að að skapa skjól og meiri birtu í miðbænum með því að snúa honum um 90 gráður, austur-vestur. Um leið yrði einnig komið til móts við ósk íbúaþingsins um að tengja miðbæinn Pollinum eins og var á árum áður. Páll segir að svo virðist sem þetta skipulag hafi verið lagt til hliðar einkum vegna mikils kostnaðar sem því yrði samfara. Þessa skýringu tel ég hins vegar á misskilningi byggða því í fræðslubæklingi sem gefin var út um tillögurnar á sínum tíma var tekið fram að breytingarnar á svæðinu væru vissulega umfangsmiklar en hafa yrði í huga að þær yrðu áfangaskiptar og kostnaður myndi dreifast á langan tíma. Þar gæti ráðið úrslitum hvort þetta nýja deiliskipulag myndi vekja áhuga fjárfesta á að byggja á svæðinu og um leið að greiða stærstan hluta kostnaðar með lóðagjöldum. Ljóst er að slíkan áhuga er erfitt að vekja ef nýtt deiliskipulag svæðisins milli Torfunefs og Strandgötu er ekki til. Þess vegna vaknar alltaf upp spurningin hvort kemur undan hænan eða eggið; enginn sýnir áhuga á að fjárfesta á svæði þar sem ekkert deiliskipulag er í gildi. Afleiðingin er stöðnun og áfram halda dáfögur bílastæði að taka upp mestan hluta dýrmæts miðbæjarsvæðis eins og ég benti á í grein í blaðinu (16.02) um farsæla tillögu að skipulagi syðsta hluta miðbæjarins sem nú er til afgreiðslu í bæjarstjórn.
Önnur afleiðing þess að ekki er gengið frá umræddu svæði í skipulaginu er að erfitt gæti verið að afgreiða tillögu Páls um að ljúka við byggingu Landsbankahússins til austurs og mynda skjól á Ráðhústorginu. Hún er raunar í góðu samræmi við þær hugmyndir sem fram komu um nýtt deiliskipulag í framhaldi íbúaþingsins og verkefnisins Akureyrar í öndvegi. Þar er gert ráð fyrir að tyrfa og setja tré á torgið og stækka það að nærliggjandi götum. Því miður virðist mér að svo ágæt tillaga sé andvana fædd enda yfirleitt lítið hægt að gera varðandi miðbæinn meðan skipulagsmál eru á ís hjá bæjaryfirvöldum og verða að óbreyttu til ársins 2016. En hver veit nema Eyjólfur hressist með hækkandi sól og skipulagsmál kjarna miðbæjarins verði tekin ofan úr hillum og afgreidd. Þá gæti leyst úr læðingi margt sem nú er hneppt í dróma hjá fjárfestum, hönnuðum og byggingariðnaði sem sannarlega skortir verkefni til lengri tíma litið. Miklu skiptir að leggja meginlínur hvað varðar miðbæjarskipulagið enda þótt það gæti tekið mörg ár að byggja allt upp í samræmi við það. Þangað til gerist örugglega lítið ef nokkuð og það er út af fyrir sig grafalvarlegt mál þegar engan tíma má missa við að efla alla þætti sem gera Akureyri í framtíðinni að öflugu mótvægi við höfuðborgarsvæðið.
Höfundur er kaupmaður.