Miðaldadagar á Gásum við Eyjafjörð
Hvað skyldi Grettir Ásmundarson hafa verið að gera á Gásum? Hvað voru Gásir og hverjir komu þangað og hvað gerðu þeir?
Saga miðaldakaupstaðarins á Gásum í Eyjafirði verður kynnt á Mið- aldadögunum á sem haldnir verða á Gásum dagana 15.-17. júlí. Á hátíðinni verður lífið á verslunarstaðnum að Gásum sviðsett fyrir gesti og gangandi. Þá verða hamarshögg eldsmiða, háreysti kaupmanna og sverðaglamur bardagamanna hluti af upplifun þeirra sem sækja Gásir heim.
Miðaldakaupstaðurinn er vel skrásettur í rituðum heimildum og fornleifarannsóknir hafa bæði staðfest það sem þar stendur og varpað nýju ljósi á þennan forna verslunarstað. Gestir hátíðarinnar geta heimsótt tilgátusvæðið sem iðar af lífi en einnig verður boðið upp á leiðsagnir um minjasvæðið sjálft þar sem hinar fornu tóftir verslunarstaðarins eru vel sýnilegar. -epe