Metaðsókn í Háskólann á Akureyri

Háskólinn á Akureyri nýtur vaxandi vinsælda.
Háskólinn á Akureyri nýtur vaxandi vinsælda.

Aldrei hafa fleiri sótt um nám við Háskólann á Akureyri en fyrir haustönn 2015. Umsóknir eru 30% fleiri samanborið við árið á undan. Rektor skólans þakkar þetta þrotlausri vinnu starfsfólks skólans.

Rúmlega 1400 umsóknir höfðu borist um skólavist fyrir haustið 2015 þegar umsóknarfrestur rann út um miðnætti þann 5. júní. Þetta er mesti fjöldi umsókna sem borist hefur Háskólanum á Akureyri frá upphafi. Mesta aukning er í sjávarútvegsfræði á grunnnámsstigi en þar er aukning 81%.


Í heilbrigðisgreinar skólans er líka mikil aukning, 57% í iðjuþjálfunarfræði og 46% í hjúkrunarfræði. Sama gildir um viðskiptafræði, kennarafræði, diplómanám í leikskólafræði og í aðrar félagsvísindagreinar skólans. Diplómanám í tölvunarfræði verður samkennt með Háskólanum í Reykjavík í fyrsta skipti næsta haust, en í það hafa borist 43 umsóknir nú þegar. Fleiri umsóknir bárust einnig í framhaldsnám við Háskólann á Akureyri og var mesta aukningin í nám í heimskautarétti (e. Polar Law). Þar bárust tæplega 56% fleiri umsóknir frá því þegar síðast var tekið inn. Einnig var mikil fjölgun í framhaldsnám í heilbrigðisvísindum eða tæp 23%.


Eyjólfur Guðmundsson, rektor Háskólans á Akureyri, segir að þetta sé árangur mikils starfs sem hefur átt sér stað innan skólans, hvað varðar uppbyggingu námsleiða, gæðavinnu og hnitmiðaðrar markaðssetningu á sérstöðu skólans. Eyjólfur segir jafnframt „ég er mjög ánægður með að þrátt fyrir verulegar þrengingar á fjármögnun skólans síðustu ár hafi tekist að halda uppi gæðum námsins vegna þrotlausrar vinnu af hálfu starfsfólks skólans. Sú vinna hefur skilað sér í ánægju nemenda, góðu og  persónulegu námsumhverfi sem skilar sér nú í fleiri umsóknum.“


Háskólinn á Akureyri mun útskrifa 322 nemendur laugardaginn 13. júní. Athöfnin fer fram í glæsilegum húsakynnum skólans og er það í annað sinn sem það er gert. Í fyrsta sinn í sögu skólans verður brautskráning í beinni útsendingu á sjónvarpsstöðinni N4 og hefst kl. 11:00.

Nýjast