Bæjarfulltrúar Framsóknarflokks, L-listans og Samfylkingarinnar hafa náð samkomulagi um myndun meirihluta í bæjarstjórn Akureyrar kjörtímabilið 2014-2018. Samkomulag var kynnt á blaðamannafundi í Hofi á Akureyri í dag og er byggt á stefnuskrám flokkanna fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 2014. Eiríkur Björn Björgvinsson verður áfram bæjarstjóri, forseti bæjarstjórnar verður Matthías Rögnvaldsson oddviti L-listans, Guðmundur Baldvin Guðmundsson oddviti Framsóknarflokksins verður formaður bæjarráðs og Logi Már Einarsson oddviti Samfylkingarinnar formaður Akureyrarstofu.
Við leggjum áherslu á félagslegt réttlæti og viljum berjast fyrir því allir njóti mannréttinda án tillits til kynferðis, trúarbragða, skoðana, þjóðernisuppruna, kynþáttar, litarháttar, efnahags, ætternis og stöðu að öðru leyti.Þetta ætlum við að hafa að leiðarljósi í öllum okkar störfum.
Við viljum virkja íbúa til lýðræðislegrar þátttöku og gera stjórnsýsluna skilvirkari m.a. með aukinni rafrænni stjórnsýslu, einfaldari og skýrari verkferlum og virkara samtali við bæjarbúa.
Lögð verður aukin áhersla á langtíma áætlanagerð um örugga og ábyrga fjármálastjórn og forgangsröðun verkefna. Við viljum auka fjölbreytni atvinnulífsins og munum beita okkur fyrir frekari samvinnu skóla og atvinnulífs. Þá ætlum við að bæta samstarf og samráð við starfsfólk sveitarfélagsins, fjölga tækifærum til starfsþróunar og öðrum leiðum sem efla þá í starfi.
Við teljum nauðsynlegt að auka fjármagn til uppbyggingar skóla og velferðarmála og við fjárhagsáætlanagerð munum við miða að því að styrkja þessa þætti rekstursins ásamt því að jafna stöðu bæjarbúa.
Bæjarfélag sem býr yfir fjölbreyttu atvinnulífi, góðum skólum, líflegri menningu og öflugu íþróttalífi er líklegt til að laða að sér nýtt fólk og halda í þann mannauð sem fyrir er. Við ætlum að leggja okkar af mörkum til að Akureyri megi áfram styrkjast og dafna, segir í samkomulaginu.
Formennska í nefndum: