Gjaldskrá leikskóla og skólavistunar verður óbreytt. „Þessi áætlun endurspeglar sterka stöðu Eyjafjarðarsveitar, en við gerum í henni ráð fyrir meiri fjárfestingum og meira viðhaldi fasteigna en verið hefur frá árinu 2007," segir Jónas.
Fjárfestingaáætlun hljóðar upp á rúmar 86 milljónir króna og áætlun um viðhald fasteigna er upp á 20 milljónir króna. Ekki er gert ráð fyrir neinum nýjum lántökum en afborganir lána á árinu 2011 eru áætlaðar 23,4 milljónir króna. Samkvæmt áætluninni er gert ráð fyrir að tekjur sveitarfélagsins nemi rúmlega 656 milljónum króna, gjöld án fjármagnsliða verði tæplega 591 milljón króna, fjármunatekjur og gjöld um 2,2 milljónir og rekstrarniðurstaða því um 53 milljónir króna.
Að sögn Jónasar er fyrirhugað að ráðast í nokkur verkefni á næsta ári og eru sum þeirra orðin brýn. Skrifstofa sveitarfélagsins verður flutt á efstu hæð heimavistarhúss Hrafnagilsskóla. Eldhús Hrafnagilsskóla verður flutt á fyrstu hæð og þá verður innréttuð kennsluaðstaða fyrir heimilisfræði þar sem eldhús skólans er nú. Sett verða upp leiktæki á lóð skólans. Þá má nefna að lagfæringar verða gerðar á aðstöðu fatlaðra í Freyvangi og Laugaborg, matsalur Hrafnagilsskóla verður sömuleiðis lagfærður. Loks má nefna að til stendur að selja núverandi skrifstofuhúsnæði sveitarfélagsins á Syðra-Laugalandi.