Meðan hagfræðingarnir sváfu – var hagyrðingurinn á vaktinni!
Hreiðar Karlsson, fyrrum Kaupfélagsstjóri Kaupfélags Þingeyinga, var djúpvitur maður og glöggskyggn þá hann var á dögum. Og augljóslega framsýnn og jafnvel forspár, ef marka má eftirfarandi vísu hans:
Menn í bönkum mikið vinna,
munu fáir duga skár.
Innstu koppar einkum sinna
eigin töku hlutafjár.
Þessi vísa Hreiðars var hvorki ort árið 2007 eða 2008. Hún birtist í Víkurblaðinu á Húsavík í febrúarmánuði árið 2000! Meðan hagfræðingar sváfu, var hagyrðingurinn sem sé á vaktinni og sá hvert stefndi. JS
Athugasemdir