Jafnvægisverðið er myndað þannig, að öll sölutilboð eru sett á framboðslínu eftir hækkandi verði og kauptilboð á
eftirspurnarlínu eftir lækkandi verði. Þar sem línur eftirspurnar og framboðs mætast, liggur jafnvægisverðið en það var í
þessu tilviki 280 krónur. Það er nokkru hærra en meðalverð viðskipta í maímánuði síðastliðnum þegar
reglugerð um markaðinn gekk í gildi en til muna lægra en þau verð sem algeng voru síðustu misserin á undan þegar verð greiðslumarks
fór í allt að 400 krónum á lítra. Alls eru það 138.555 lítrar sem viðskipti ná til að þessu sinni. Það er
Matvælastofnun sem sér um tilboðsmarkaðinn en með honum er ætlunin að koma til móts við þarfir greinarinnar fyrir nauðsynlega tilfærslu
innan hennar, auka gagnsæi viðskipta og koma um leið í veg fyrir verðlagningu greiðslumarks sem vinnur gegn hag neytenda og greinarinnar sjálfrar.
Kvótamarkaðir með greiðslumark mjólkur verða haldnir tvisvar á ári, þann 1. desember og 1. júní.