Geir Kristinn Aðalsteinsson forseti bæjarstjórnar Akureyrar lýsir yfir vanþóknun á ummælum Sigurðar Guðmundssonar bæjarfulltrúa í síðasta Vikudegi. Þar sagði Sigurður að hann vildi reka nokkra embættismenn bæjarins úr starfi.
Ummæli Sigurðar Guðmundssonar eru að mínu mati honum til vansa og slík ummæli sæma ekki sitjandi bæjarfulltrúa. Við bæjarfulltrúar höfum okkar siðareglur til að fara eftir og það sem fram kom í viðtalinu við Sigurð er ekki í samræmi við þær. Að yfirmaður skuli sjá ástæðu til að tala svona til sinna undirmanna á opinberum vettvangi sætir tíðindum. Akureyrarbær er afar heppinn með sitt góða starfsfólk og embættismennirnir fimmtán eru þar engin undantekning og því lýsi ég vanþóknun minni á þessum óheppilegu ummælum Sigurðar, segir Geir Kristinn Aðalsteinsson í yfirlýsingu sinni.