Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar lýsir sig reiðubúna til að auka hlutfé sitt í Vaðlaheiðargöngum til að tryggja að hafist verði handa við gerð Vaðlaheiðarganga sem allra fyrst. Þetta kemur fram í ályktun sem samþykkt var á fundi sveitarstjórnar í gær. Þar segir ennfremur: Það liggur fyrir að þetta samvinnuverkefni sveitarfélaga á svæðinu, íbúa þess, fyrirtækja og ríkisins er afar mikilvægt út frá félags-, byggða- og efnahagslegum sjónarmiðum auk þess að tryggja betri samgöngur og meira umferðaröryggi.
Fyrir liggur að vegafé hefur verið skorið verulega niður í kjölfar efnahagshrunsins á Íslandi. Forsenda fyrir gerð Vaðlaheiðarganga er því að verkefnið geti staðið undir sér og trufli þannig ekki eða seinki öðrum vegaframkvæmdum á vegum ríkisins. Því lýsir sveitarstjórn Þingeyjarsveitar sig tilbúna til að auka hlutfé sitt og tryggja þannig enn betur að komi til óvæntra skakkafalla raski það ekki þeim forsendum sem út frá er gengið. Jafnframt skorar sveitarstjórn Þingeyjarsveitar á stjórnvöld að láta ekki sitt eftir liggja til að tryggja framgang verkefnisins til hagsbóta fyrir íbúa svæðisins og alla þjóðina."
Áður hafði sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar lýst vilja sínum til að auka hlutafé sitt í Vaðlaheiðargöngum um allt að tvöföldun frá því sem áður hefur verið lofað svo hægt sé að hefja framkvæmdir við göngin sem allra fyrst.