Ljósaganga og samstaða á Ráðhústorgi

Menntaskólinn á Akureyri. Mynd: Hörður Geirsson.
Menntaskólinn á Akureyri. Mynd: Hörður Geirsson.

Í tilefni af alþjóðlegu 16 daga átaki gegn kynbundnu ofbeldi verður efnt til örþings í Kvos Menntaskólans á Akureyri í dag föstudag kl. 16.30. Gengið verður með kyndla frá Menntaskólanum að Ráðhústorgi kl. 17.00 þar sem fram fer samstaða með brotaþolum ofbeldis. Í Kvosinni mun Katrín Björg Ríkarðsdóttir, framkvæmdastjóri samfélags- og mannréttindadeildar Akureyrarbæjar, kynna aðgerðaáætlun bæjarins gegn kynbundnu ofbeldi og ofbeldi gegn börnum, Aflið mun kynna starfsemi sína og nemendur Menntaskólans stíga á stokk.

Alþjóðlegt 16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi má rekja aftur til ársins 1991 og er þetta því í 20. skiptið sem átakið er haldið á heimsvísu. Dagsetning átaksins var valin til að tengja á táknrænan hátt kynbundið ofbeldi og mannréttindi. 25. nóvember er alþjóðlegur baráttudagur gegn ofbeldi gegn konum og 10. desember er hinn alþjóðlegi mannréttindadagur. Markmið átaksins er að knýja á um afnám alls kynbundins ofbeldis. Í ár er alþjóðlegt þema átaksins kynbundið ofbeldi í stríði og vopnuðum átökum en jafnframt er sjónum beint að heimilisofbeldi því aðeins þegar friður er á heimilum næst friður í heiminum. Hér heima höfum við því einbeitt okkur að yfirskrift átaksins "Heimilisfriður - heimsfriður". Margt hefur áunnist undanfarin ár í baráttu gegn kynbundnu ofbeldi; íslensk stjórnvöld hafa gert ítarlega aðgerðaáætlun gegn ofbeldi á heimilum og kynferðisofbeldi og aðgerðaáætlun gegn mansali. Brýnt er að fyrirhugaður niðurskurður hins opinbera bitni ekki á framkvæmd þessara áætlana því vitað er að efnahagsþrengingar geta leitt til aukins kynbundins ofbeldis.

Að ljósagöngunni og samstöðunni standa: Jafnréttisstofa, Aflið - samtök gegn kynferðis- og heimilisofbeldi, Samfélags- og mannréttindadeild Akureyrarbæjar, Rannsóknarmiðstöð gegn ofbeldi, Verkmenntaskólinn á Akureyri, Menntaskólinn á Akureyri, Zontaklúbburinn Þórunn Hyrna, Zontaklúbbur Akureyrar og Veitingahúsið Bautinn. Þetta kemur fram á vef Akureyrarbæjar.

30. nóvember

Kl. 18:00 Kvikmyndasýning í Sambíói á verðlaunamyndinni  „Pray the devel back to hell“   Aðgangur ókeypis en tekið við frjálsum framlögum til styrktar Aflinu, Samtökum gegn kynferðis- og heimilisofbeldi

 2. desember

Kl.12-13:30 „Ekki líta undan“ Hádegisstund  í safnaðarheimili Glerárkirkju með  Guðrúnu Ebbu Ólafsdóttur og Sigrúnu  Sigurðardóttur, hjúkrunarfræðingi.  Samlokur og kaffi.   Allir velkomnir

 3. desember

Kl. 14-17  Leikhópurinn Þykista kynnir gangverkið "Griðastaður-Stríðsvöllur" í betri stofunni á Götubarnum.  Aðgangur er ókeypis.  Gestir eru hvattir til að horfa þar til þeir sjá.

 7. desember

Kl. 12  Fundur á Hótel KEA „Karlar til ábyrgðar“ Úrræði fyrir karla sem beita ofbeldi

10. desember - Mannréttindadagurinn

Kl. 13 Mannréttindakaffi  í  Eymundsson , Vigdís Grímsdóttir les úr bók sinni Trúir þú á töfra og fjallað verður um mannlega reisn

 

Nýjast