Ljóðahátíð í Eyjafirði
Dagskráin verður þríþætt eins og fram kemur hér að neðan. Hópur góðskálda heimsækir Eyjafjörð og les ljóð sín fyrir heimamenn og gesti. Fram munu koma eftirtalin skáld: Guðbrandur Siglaugsson, Kristín Svava Tómasdóttir, Anton Helgi Jónsson, Bjarni Gunnarsson, Þórunn Erlu Valdimarsdóttir og Ísak Harðarson
Fyrst verður ljóðakvöld í Verksmðjunni á Hjalteyri kl. 21.00 föstudaginn 23. september. Síðan Ljóðaganga Grundarskógi í Eyjafirði kl. 14.00 laugardaginn 24. september og að lokum ljóðakvöld í Populus tremula sama kvöld kl. 21.00. Aðgangur ókeypis og öllum heimill. Malpokar leyfðir. Ljóðahátíðin er styrkt sérstaklega af Menningarráði Eyþings, Uppheimum og Amtsbókasafninu á Akureyri.