Sýningu Mireyu Samper, Endurvarp, lýkur á morgun, sunnudaginn 16. ágúst í Listasafninu á Akureyri. Af því tilefni verður boðið upp á listamannaspjall með Mireyu í dag, kl. 15 og er aðgangur ókeypis. Sýningin Endurvarp endurspeglar ferli og áhrif sem Mireya hefur unnið með og upplifað, bæði á Íslandi og í Japan, undanfarin misseri. Fjallað er um innri og ytri kosmós, óendanleikann, eilífðina, endurtekninguna og hringrásina innri og ytri hringrás.
Á sýningunni er að finna innsetningu, tví- og þrívíð verk eftir Mireyu ásamt verkum eftir japönsku gestalistamennina Tomoo Nagaii sem samdi hljóðverk með innsetningunni og vídeó verk eftir Higuma Haruo unnið uppúr samvinnu hans og Mireyu með sömu innsetningu. Innsetningin er einskonar íhugunarrými gestum sýningarinnar býðst að fara inn í rýmið, setjast eða leggjast og gefst þar tækifæri til íhugunar. Þá er einnig japanska gjörningalistakonan Kana Nakamura þátttakandi í sýningunni. Pappírsverkin á sýningunni eru öll unnin á japanskan washi pappír og flest þeirra með tækni sem Mireya hefur þróað og gerir þau ljóshleypin og kallar fram nýja eiginleika í pappírnum.