Líf og fjör í Gamla bænum í Laufási

Það verður líf og fjör í Laufási laugardaginn 2. júlí nk. en þá gefst gestum og gangandi kostur á að upplifa lífið eins og það var á 19. öld í burstabæ í Gamla bænum í Laufási, á starfsdegi að sumri. Dagskráin stendur frá kl. 13.30-16.00 og hefst í kirkjunni, þar sem sr Gylfi Jónsson stýrir fjölskyldusamveru. Að henni lokinni verður fólk að störfum í Gamla bænum.  

Hann mun því iða af lífi á ný þennan dag þar sem fólk íklætt tilheyrandi klæðnaði mun vinna úti sem inni. Í Gamla bænum verður unnið úr undirstöðu mataræðis Íslendinga fyrr á öldum, mjólkinni, því þar verður bæði osta- og skyrgerð.Tilvalið er fyrir þá sem áhuga hafa á jurtum að kíkja við og safna fróðleiksmolum í sarpinn um íslenskar nytjajurtir.  Á hlaðinu verður heyskapur í fullum gangi þar sem slegið verður með orfi og ljá, heyið tekið saman og bundið í bagga. Fagrir tónar munu óma um sveitina kl. 15 um leið og danshópurinn Vefarinn stígur taktfastann dans við eigin söng.

Í tilefni af Landsmóti hestamanna í Skagafirði verður sýning á á reiðfatnaði og reiðtygjum frá fyrri tíð ásamt ýmsu öðru sem tilheyrir hestamennsku í dúnhúsinu og skálanum í Gamla bænum. Auk þess sem Pólarhestar munu teyma undir börnum á hlaðinu.

Dásamlegur lummuilmur fyllir vit gesta þennan dag og þeim verður boðið að smakka á ýmsu góðgæti sem unnið verður í Gamla bænum s.s. nýgerðri smjörklípu á heimabökuðu rúgbrauði, fjallagrasabrauði og auðvitað lummum. Gestir eru hvattir til þess að mæta í þjóðbúningi og eir sem það gera greiða engan aðgangseyri. Þátttakendur í starfsdeginum í Laufási eru félagar úr Laufáshópnum auk fjölda sjálfboðaliða. Í Kaffi Laufási er þjóðlegar veitingar, þar er hráefni úr héraði í hávegum haft.

Nýjast