Líðan mannsins sem fannst meðvitundarlaus í Sundlauginni á Akureyri í gærmorgun er óbreytt samkvæmt upplýsingum frá Sjúkrahúsinu á Akureyri. Hann dvelur enn á gjörgæsludeild sjúkrahússins. Maðurinn er á níræðisaldri og var fluttur á sjúkrahúsið í gær þar sem hann var endurlífgaður. Ekki er vitað hvernig atvikið bar að eða hversu lengi maðurinn lá á botni sundlaugarinnar. Líklegt er þó talið að maðurinn hafi fengið hjartaáfall en hann er hjartasjúklingur með gangráð.
Krakkar hjá Sundfélaginu Óðni voru á æfingu þegar atvikið átti sér stað og urðu varir við manninn. Þeir gerðu öðrum sundlaugargestum viðvart sem drógu manninn upp á sundlaugarbakkann.