Ég hef hugsað um mögulega útfærslu á skemmtilegum stíg við Pollinn hérna á Akureyri í töluverðan tíma. Ég leitaði í fyrra til Arnars Birgis Ólafssonar landlagsarkitekts, sem hjálpaði mér við að útfæra hugmyndina, stígurinn liggur á milli Torfunefnsbyggju og Höepfnersbryggju, segir Sigfús Karlsson fulltrúi Framsóknarflokksins í framkvæmdaráði Akureyrarbæjar. Tillagan hefur þegar verið kynnt fyrir ráðinu og segir Sigfús að viðbrögðin hafi verið jákvæð.
Sigfús ræddi við fjölda fólks á Akureyri um hvað það sæi fyrir sér. "Þá kom meðal annars fram hugmyndin um að gera göngustíg í bryggjustíl og síðan þá hef ég verið að þróa hana með mér með þessum árangri.
Nánar um þetta í prentútgáfu Vikudags