Lestrarátak í Glerárskóla

Lestrarátak í Glerárskóla gekk vel.       Mynd: Þorsteinn G. Gunnarsson
Lestrarátak í Glerárskóla gekk vel. Mynd: Þorsteinn G. Gunnarsson

Nemendur á yngsta- og miðstigi Glerárskóla hafa varla litið upp úr bókunum síðustu daga. Efnt var til sérstaks lestrarátaks meðal krakkanna sem sannarlega sló í gegn. Átakið varði í 13 kennsludaga og heimalestur var talinn með. Alls lásu nemendurnir í samtals 1.506 klukkustundir og meðallestur nemanda var 6,73 klukkustundir.

Formið var einfalt. Krakkarnir söfnuðu lestrarmínútum og merktu inn á klukkur sem skilað var á bókasafn skólans. Heilmikil keppni varð meðal bekkja en daglega var tölfræði sem sýndi stöðuna hengd upp á áberandi stað í skólanum. Bekkirnir skiptust á að leiða keppnina en krakkarnir í sjöunda bekk áttu mjög sterkan endasprett og lásu mest allra. Heildarlestur þeirra var 427 klukkustundir sem gerir 12,20 klukkustundir á nemanda að meðaltali.

Næstmesti meðallestur nemanda var í þriðja bekk en þar var meðallesturinn 8,71 klukkustund og 8,20 klukkustundir hjá sjötta bekk.

Fjórði bekkur var öðru sæti hvað varðar heildarlestur bekkja, en nemendurnir lásu í samtal 303 klukkustundir. Fimmti bekkur var í þriðja sæti en þar var lesið í 249 klukkustundir.

Óvenju mikið var að gera á bókasafni skólans meðan á átakinu stóð og mun minna var tekið af uppflettiritum, mynda- og fræðslubókum en alla jafna. Þeim mun meira var lánað út af bókmenntum við hæfi nemendanna.

Í verðlaun fyrir frábæra ástundun fá krakkarnir í sjöunda bekk frjálsan tíma í íþróttasal skólans með umsjónarkennurunum sínum.

Það er heimasíða Akureyrarbæjar sem segir frá þessu fyrst.


Athugasemdir

Nýjast