Lengra töfrateppi í Hlíðarfjalli

Töfrateppið í Hlíðarfjalli, færibandalyfta fyrir yngstu kynslóðina, hefur nú verið lengt úr 42 metrum í 63 metra. Nýtt og betra teppi var vígt í gær af nemendum úr Síðuskóla en lengingin var styrkt af þeim fyrirtækjum sem mynda hópinn “Vinir Hlíðarfjalls”. Á laugardag kl. 14.00 verður í fyrsta sinn á Íslandi keppt í svokölluðu slöngusvigi í Hlíðarfjalli. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins og Akureyrar etja kappi þar sem fimm slökkviliðsmenn frá hvoru liði renna sér niður brekkurnar í fullum skrúða og halda á brunaslöngu sín á milli. Þrátt fyrir nokkuð rysjótta tíð í vetur, hefur skíðavertíðin gengið ágætlega, að sögn Guðmundar Karls Jónssonar forstöðumanns skíðasvæðisins í Hlíðarfjalli. Nægur snjór er nú í öllum brekkum og allt útlit fyrir að páskarnir verði góðir fyrir skíðafólk í Fjallinu. Um næstu helgi verður þriðja skiptihelgi vetrarins á Norðurlandi en þá geta þeir sem eiga vetrarkort í Hlíðárfjalli, Tindastóli, Dalvík og Fjallabyggð, flakkað á milli svæðanna og rennt sér að vild.

 

Nýjast