Framleiðslufyrirtækið Join Motion Pictures leitar að unglingsdrengjum á aldrinum 13 -15 ára til að leika í kvikmyndinni Hjartasteinn sem áætlað er að taka upp á tímabilinu ágúst-október 2015.
"Ef þú hefur áhuga eða reynslu af leiklist og ert á aldrinum 13 -15 ára þá viljum við endilega fá þig í prufu," segir í tilkynningu.
Áhugasamir eru vinsamlegast beðnir um að senda eftirfarandi upplýsingar: Fullt nafn, aldur og hæð ásamt nýlegri ljósmynd (andlitsmynd og mynd í fullri stærð) á casting@joinmotionpictures.com.
ATH. Nafn, heimilisfang, sími og netfang hjá forráðamanni skal einnig fylgja umsókninni. Einnig er hægt að mæta beint á svæðið.